Seljandi: Björn Björnsson, Syðri Brennihóli, 601Akureyri, sími 848 2640. netfang : bjornbh@simnet.is sendið tölvupóst

Yngri Folda 02265424
Efnileg jörp hryssa undan Andvara frá Ey 90184730 og Foldu 86265424 frá Syðra Brennihóli , 5 vetra og lítið tamin. Verð 300þúsund.
Skjóni 02165420
M. Irpa 83265029 frá Syðra Brennihóli. F. Mjölnir 98165246
Fimm vetra fallegur foli. Það er rétt byrjað að tamja hann, og hann lofar mjög góðu. Efni í alhliða gæðing.
Víkingur IS199916542
Jarpur átta vetra foli. Mikill vilji, gott tölt og gott brokk. Afar blíðlyndur og geðgóður. Hentar ekki byrjendum.

Hafdís IS2000265420
F. Númi frá Þóroddsstöðum. M. Brúða frá Syðra Brenniholi 198526501.
7 vetra rauð, ekki full mótuð. Alhliða, meðfærilegt hross.

Trausti 99165425
F. Álfur 92165560 M. Ösp 86265425
Brúnn átta vetra klár; stórvaxinn, rólyndur og mjúkur ásetu. Heppilegur fyrir þá sem misst hafa kjarkinn.

Flugnir 02165425
F. Mjölnir 98165246 M. Ösp 86265425
Fimm vetra jarpskjóttur frumtamin. Efni í alhliða hest.

Bleikur 02165421
F. Mjölnir 98165246. M. Harpa 84265030
Fimm vetra bleikálóttur, stó vexti og myndarlegur; dálítið taminn. Byrjunin lofar góðu.

Drumbur 99165423
F. Dagur frá Staðatungu 94165311. M. Embla 85265006
8vetra brúnn klárhestur með gott tölt.